MamaMia

sunnudagur, nóvember 23, 2003

Jamm... fyrsta æfingahelgin á Kátu ekkjunni, ég er rétt í hléi núna, en er svo að fara aftur og verð fram á kvöld. Þetta gengur nú bara mun betur en ég bjóst við. Þetta eru auðvitað ekki allt prófessíónal söngvarar en öllum gengur bara nokkuð vel og kórinn er vel undirbúinn, það finnst mér rosa gott. Þetta er svosum ekki flókin tónlist og ég sé að ég verð komin með þetta utan að að mestu leyti fyrir jól, og það er bara gott mál ;o)

Ég er alltaf á leiðinni að gera svona 100 lista en ég hef mig bara ekki í það um þessar mundir, er alltof sjálflæg og þung þessa dagana til að vera hreinskilinn og skemmtileg í þessari upptalningu! Ég er nú samt mun betri í skapsveiflunum núna heldur en ég var bara fyrir viku síðan, og ég held að jólin eigi nú sinn þátt í því, því eins og flestir vita sem mig þekkja að þá er ég algjört jólabarn og það eykst með hverju ári!

Villi bróðir kemur svo heim 7. desember, ég hlakka mikið til. Dagana á undan, 3.-6. desember verðum við Guðmundur ein í koti því að m & p ætla að skreppa suður.. JEIJ... og þá verður nú gaman og kósý hjá okkur ;o)

Jæja, best að haska sér í bæinn aftur... æfing æfing æfing!!!

þriðjudagur, nóvember 18, 2003

Ok... hef sem sagt ekki verið í miklu bloggstuði, og þegar ég hef verið í tölvunni hefur það verið til þess að gera eitthvað markvisst og svo slekk ég á henni... nenni ekki meiru!!!

Svona persónulega sökkar lífið svolítið núna.. það kemur og fer í bylgjum og við Guðmundur svo hrikalega meðvirk hvoru öðru að það hálfa væri miklu meira en nóg. Við erum samt í góðu stuði inn á milli og erum meira að segja farin að teikna og skipuleggja alveg á fullu. En það er þetta.... maður er bara komin með nóg af skólalífinu og vill fara að koma sér í annan gír, hefja lífið eins og ég segi stundum. Með öðrum orðum, við hlökkum geðveikt til að fara í jólafrí!

Mér bauðst reyndar gott tækifæri núna á dögunum. Mér var boðið hlutverk uppfærslu Leikhússkórsins á Kátu ekkjunni, sem er óperetta eftir Franz Lehár. Ég þáði það, þó svo að ég sé að fara að skrifa lokaritgerð á næstu önn og frumsýning í byrjun mars. Þetta er bara þannig tækifæri að ég get ekki sagt nei, mig langar til að gera þetta, ég læri heilmikið á því og kem mér loksins á framfæri sem söngvari hérna fyrir norðan. Plús það að ég veit það af gefinni reynslu að ég vinn oftast best undir pressu...

Jæja... þetta er ágætt... hægt að sjá að ég er á lífi Jósa mín ;o) Ekki hafa áhyggjur af mér dúllan mín, þetta lagast allt saman hjá mér!

sunnudagur, nóvember 02, 2003

Jæja jæja jæja... loksins komin aftur!! Það er búið að vera ágætlega mikið að gera eftir að við komum heim frá Noregi, og eitt skiptið þegar ég svo hafði tíma í vikunni, þá komst ég ekki inn á bloggsvæðið!

Það var alveg meiriháttar úti í Noregi. Við fengum í fyrsta lagi alveg frábært veður, það var reyndar frekar kalt á fimmtudeginum, en það hlýnaði svo dag frá degi. Við fengum það gott veður að við höfðum alveg mergjað útsýni úr flugvélinni til og frá Noregi, og fengum því að sjá landið og fegurð þess að einhverjum smáhluta. Villi var í svaka stuði og rosa gott og gaman að vera með honum. Villi sýndi okkur það helsta í miðborginni á fimmtudeginum, en svo á meðan Villi var í skólanum á föstudeginum, þvældumst við Guðmundur um alla miðborgina og hreinlega gengum af okkur lappirnar. Það var extra gaman hjá okkur því við létum loks verða af því að kaupa okkur digital myndavél, rosa flotta og góða, og hún var sko notuð óspart þarna úti. Myndir okkar saman safnast aðallega af arkitektúr og trjám, og svo auðvitað dágóðum slatta af spassamyndum af okkur þremur!! Já og bara öllu merkilegu sem við sáum. Við héldum áfram að þvælast á laugardeginum, auðvitað nokkrar verlsunarmiðstöðvar heimsóttar en lítið keypt, nema skór á mig svo að ég gæti haldið áfram að labba!!! Um kvöldið var svo matarboð hjá Bibbu frænku, sem býr ekkert langt frá Villa, en hún er búin að búa úti í Noregi í tæp 10 ár. Við erum systradætur. Við Guðmundur komum sem sagt með íslenskt lambalæri af nýslátruðu og ég eldaði það fyrir okkur. Auðvitað fengum við svo gott með því sem Bibba og kærastinn hennar, Hovar, kokkuðu með herlegheitunum. Eftir matinn var tekið til við að hlusta og djamma við íslenska tónlist, en Bibba á alveg einstakt safn íslenskrar tónlistar, diska sem manni dettur ekki í hug að kaupa, nema maður búi erlendis og hafi ekki aðgang að Rás 1 og Rás 2. Þvílík snilld... Á sunnudeginum fórum við svo upp að Holmekollen (þetta er nú sennilega ekki rétt skrifað hjá mér!) og fórum alla leið upp í stökkpallinn. ÞVÍLÍKT ÚTSÝNI!!! Svo gerir maður sér enga grein fyrir því hvað þetta er geðsjúklega bratt það sem guttarnir eru að stökkva, þeir lenda bara í nánast 90 gráðu brattri brekku! Á heimleiðinni í sporvagninum varð svo til local-brandari ferðarinnar, þar sem við heyrðum út undan okkur tvo blindfulla gutta spjalla saman, annar norskur en hinn franskur. Þeir töluðu mest megnis saman á frönsku, en sá norski var greinilega búin að vera kenna þeim franska nokkrar valdar setningar á norsku. Það sem var svo fyndið við það, að sá franski æfði sig á setningunum ALLA LEIÐ niður að aðalstöðinni, með sínum einstaka franska framburði, með enga tilfinningu fyrir hljómfallinu, né áherslum!! Hallo... hvordangordi?.... hallo... hardudebra?! Hahahaha.... Á sunnudeginum skoðuðum við líka skólann hans Villa og hafnarsvæðið. Um kvöldið fórum við svo út að borða á voða krúttlegum stað við höfnina. Á mánudeginum þvældumst við eitthvað aðeins fram að hádegi, en svo var bara komið að því að koma sér út á völl og heim.

Það var fínt að koma heim, en auðvitað hefðum við alveg verið til í að vera lengur. Það var víst þvílíka blíðan hér á sunnudeginum, u.þ.b. 20 stiga hiti, en nú á þriðjudag eða miðvikudag fór að frysta og snjóa... og nú er bara sannkallað vetrarríki hér fyrir utan gluggann hjá mér. Ísland.. best í heimi!!